13. janúar 2022

Menntaverðlaun Atvinnulífsins - Tilnefningar óskast

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Menntaverðlaun Atvinnulífsins - Tilnefningar óskast

Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent á Menntadegi atvinnulífsins.

Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála fyrir 15. febrúar nk. Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum, menntafyrirtæki og menntasproti ársins 2022, en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið.

Helstu viðmið fyrir menntafyrirtæki ársins eru:

  • að skipulögð og markviss fræðsla sé innan fyrirtækisins
  • að sem flest starfsfólk taki virkan þátt
  • að haldið sé utan um mælikvarða í fræðslumálum
  • að hvatning sé til staðar til frekari þekkingaröflunar

Helstu viðmið vegna menntasprota ársins eru:

  • að lögð sé stund á nýsköpun í menntun og fræðslu-innan fyrirtækis og/eða í samstarfi fyrirtækja
  • samstarf fyrirtækja og samfélags um eflingu fræðslu-innan sem utan fyrirtækja

Fyrirtækjum er velkomið að tilnefna sig sjálf en skýr og skipulögð gögn hjálpa dómnefnd að meta verkefni. Vinsamlega skilið greinargerð, að hámarki þrjár A4 blaðsíður þar sem rökstutt er hvers vegna viðkomandi fyrirtæki er tilnefnt og hvernig það uppfyllir viðmiðin sem liggja til grundvallar.

Tilnefningar og fylgiskjöl sendist rafrænt í tölvupósti á verdlaun@sa.is – eigi síðar en 15. febrúar nk. Ekki er tekið við tilnefningum eða gögnum eftir þann tíma.

Verðlaunin verða veitt á Menntadegi atvinnulífsins. Dagsetning menntadags verður auglýst á næstu vikum.

Samtök atvinnulífsins