12. janúar 2022

Hildur Betty Kristjánsdóttir nýr framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Hildur Betty Kristjánsdóttir nýr framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins

Hildur Betty hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) frá 1. febrúar nk. Hún tekur við starfinu af Sigríði Guðmundsdóttur sem hverfur til annarra starfa.

Hildur Betty hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) frá 1. febrúar nk. Hún tekur við starfinu af Sigríði Guðmundsdóttur sem hverfur til annarra starfa.

Hildur Betty hefur starfað við menntamál í 25 ár og þar af í 15 ár á sviði fullorðinsfræðslu. Hún leggur nú stund á doktorsnám við menntavísindasvið Háskóla Íslands með áherslu á nám fullorðinna. Hildur Betty hefur lokið meistaranámi í stjórnun menntastofnana frá Háskólanum á Akureyri og grunnskólakennaranámi frá Kennaraháskóla Íslands. Í dag starfar Hildur Betty sem aðjúnkt við Háskóla Íslands samhliða doktorsnámi sínu. Áður starfaði hún meðal annars hjá Ásgarði, skóla í skýjunum, FA og hjá SÍMEY á Akureyri.

„Ég er full tilhlökkunar að hefja störf hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og starfa með öflugu starfsfólki og stjórn að þeim fjölmörgu sóknarfærum sem til staðar eru á sviði fullorðinsfræðslu,“ segir Hildur Betty.

Verkefni FA eru að vera leiðandi í að greina, meta og auka hæfni í atvinnulífinu og styðja þannig við þróun starfsfólks til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína. Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir er stjórnarformaður FA fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins:

„Það eru mikil verðmæti í því að fá Hildi Betty til liðs við okkur. Við okkur blasa krefjandi áskoranir enda miklar breytingar fyrirsjáanlegar á vinnumarkaði hvað varðar þróun starfa og framboð. Lög um málaflokkinn þarf að endurskoða og í framhaldinu þarf að aðlaga og þróa starfsemina til að mæta nýjum áskorunum. Hildur Betty verður öflugur talsmaður og leiðtogi og við væntum mikils af henni og þeim góða hópi starfsfólks sem fyrir er í FA. Um leið þökkum við Sigríði Guðmundsdóttur fyrir hennar ómetanlega starf í þágu FA,“ segir Ingibjörg.

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins var stofnuð árið 2002 af Alþýðusambandi Íslands og Samtökum atvinnulífsins með það að markmiði að vera vettvangur um bætta menntun og möguleika fyrir einstaklinga á vinnumarkaði með litla grunnmenntun, innflytjendur og sambærilega hópa.

Samtök atvinnulífsins