Fréttir - 

12. október 2017

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2017

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2017

Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn fimmtudaginn 12. október á Hilton Reykjavík Nordica kl. 8.30-12. Dagurinn er að þessu sinni helgaður loftslagsmálum.

Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn fimmtudaginn 12. október á Hilton Reykjavík Nordica kl. 8.30-12. Dagurinn er að þessu sinni helgaður loftslagsmálum. 

Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér á vef SA.

8.30-10 ATVINNULÍFIÐ OG LOFTSLAGSMÁL

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA.                 
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands.
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.

Hvað eru fyrirtækin að gera?

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.
Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla hjá Eimskip.
Svavar Svavarsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá HB Granda       
Hrefna Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Elkem Ísland.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2017.
Umhverfisfyrirtæki ársins útnefnt og framtak ársins á sviði loftslagsmála verðlaunað.

Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri SFF, stýrir dagskránni.

10-10.30 Kaffi og með því

10.30 – 12 MÁLSTOFUR SAMTAKA Í ATVINNULÍFINU

A) Ábyrgar fjárfestingar, nýsköpun og loftslagsmál

  • Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri markaða hjá Landsbanka Íslands
  • Hjálmar Sigurþórsson, framkvæmdastjóri hjá Tryggingamiðstöðinni
  • Sigrún Hildur Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Klöppum – Grænum Lausnum hf.
  • Ingvar Ingvarsson, hagfræðingur SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu
  • Ketill B. Magnússon, framkvæmdastjóri Festu - miðstöðvar um samfélagsábyrgð fyrirtækja
  • Umræður og fyrirspurnir

Málstofustjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku

B) Orkuskipting og orkunýting

  • Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar
  • Margrét Ormslev, fjármálastjóri, Carbon Recycling International
  • Steingrímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar
  • Magnús Ásgeirsson, innkaupastjóri eldsneytis, N1
  • Guðmundur Haukur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Vistorku
  • Umræður og fyrirspurnir

Málstofustjóri er Kristín Vala Matthíasdóttir, framkvæmdastjóri auðlinda HS Orku

Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Umsóknarferli er lokið.

Samtök atvinnulífsins