Vinnumarkaður - 

14. október 2014

Um 10 milljarða ávinningur af starfsemi VIRK á árinu 2013

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Um 10 milljarða ávinningur af starfsemi VIRK á árinu 2013

Talnakönnun hf. kemst að þeirri niðurstöðu í nýútkominni skýrslu að starfsemi VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs sé mjög arðbær. Um 10 milljarða ávinningur hafi verið af starfsemi VIRK árið 2013 sem skili sér til Tryggingarstofnunar, lífeyrissjóða og ríkisins að ótöldum ábata fjölda einstaklinga.

VIRK fékk Talnakönnun til að greina árangur og hagnað af starfsemi VIRK árið 2013 út frá ópersónugreinanlegum upplýsingum úr gagnagrunni Starfsendurhæfingarsjóðs auk þess sem unnið var með upplýsingar lífeyrissjóða um meðallaun. Markmiðið var að finna mælikvarða á ávinning af starfsemi VIRK sem taki mið af raunverulegum árangri undanfarin ár, árangri sem felst í að flýta endurhæfingu, stytta tímabil óvinnufærni einstaklinga og minnka tíðni örorku.

Þrátt fyrir varfærnar forsendur kemst Talnakönnun að þeirri niðurstöðu í skýrslu sinni að starf VIRK skili miklu til samfélagsins.  Þannig hafi ávinningur lífeyrissjóða af starfi VIRK  numið nærri fimm milljörðum árið 2013, ávinningur Tryggingastofnunar hátt á fjórða milljarð króna og skatttekjur opinberra aðila hafi aukist um 1,5 milljarða króna. Síðast en ekki síst batnar hagur einstaklinga sem nýta sér þjónustu VIRK fjárhagslega og lífsgæði þeirra aukast.

Sjá nánar á vef VIRK

Samtök atvinnulífsins