Fréttir - 

10. október 2016

Stjórnendur 400 stærstu: Aðstæður góðar og verða það áfram

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Stjórnendur 400 stærstu: Aðstæður góðar og verða það áfram

Niðurstöður könnunar Gallup meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins endurspegla góðar aðstæður í atvinnulífinu. Meta stjórnendur aðstæður með svipuðum hætti og á árabilinu 2004-2007.

Niðurstöður könnunar Gallup meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins endurspegla góðar aðstæður í atvinnulífinu. Meta stjórnendur aðstæður með svipuðum hætti og á árabilinu 2004-2007.

Vinnuaflsskortur er nokkur þar sem tæpur helmingur fyrirtækja finnur fyrir honum, en hann hefur þó ekki farið vaxandi frá síðustu könnun. Búast má við tæplega 2% fjölgun starfsmanna á almennum vinnumarkaði á næstu sex mánuðum.

Stjórnendur búast við 2,0% verðbólgu á næstu 12 mánuðum og að innlend aðföng hækki um rúmlega 1%. Verðbólguvæntingar stjórnenda hafa minnkað og eru minni en þær hafa verið síðastliðin sex ár.

Góður gangur í atvinnulífinu
Vísitala efnahagslífsins, sem endurspeglar mun á fjölda stjórnenda sem meta aðstæður góðar og slæmar, er enn í hæstu hæðum eins og undanfarið ár. Yfirgnæfandi meirihluti stjórnenda, 83%, telur aðstæður í atvinnulífinu góðar, en einungis 2% að þær séu slæmar. Sjávarútvegurinn sker sig úr í samanburði atvinnugreina þar sem 12% stjórnenda sjávarútvegsfyrirtækja telja aðstæður slæmar sem rekja má til sterks gengis krónunnar.

Aðstæður gætu enn batnað
Stjórnendur eru almennt sammála um að staðan í atvinnulífinu verði jafngóð eða betri eftir sex mánuði. 39% telja að aðstæður batni, 52% að þær verði óbreyttar en 9% að þær versni. Minnst bjartsýni á framvinduna er meðal stjórnenda í sjávarútvegi, þar sem 28% þeirra telja að aðstæður muni versna, en einnig ber á áhyggjum í byggingariðnaði, þar sem 15% stjórnenda telja að aðstæður versni, og í flutningum og ferðaþjónustu þar sem 11% telja að ástandið versni.

undefined

Skortur á starfsfólki fer ekki vaxandi
Skortur á starfsfólki er óbreyttur frá síðustu könnun sem gerð var í maí sl. og telja 42% stjórnenda skort ríkja á starfsfólki. Yfir helmingur stjórnenda í iðnaði, verslun og byggingariðnaði segja skort vera á starfsfólki, en um 40% stjórnenda í flutningum og ferðaþjónustu. Minnstur skortur á starfsfólki er í fjármálastarfsemi, sjávarútvegi og þjónustugreinum.

Starfsmönnum gæti fjölgað um 2.100 á næstu 12 mánuðum
Rúmlega 30 þúsund starfsmenn starfa hjá fyrirtækjunum í könnuninni. 37% stjórnenda þeirra sjá fram á fjölgun starfsmanna á næstu sex mánuðum, 5% sjá fram á fækkun en 58% búast við óbreyttum fjölda. Þegar svör stjórnenda eru vegin með stærð fyrirtækjanna fæst að starfsmönnum þeirra fjölgi um 1,8% á næstu sex mánuðum. Sé sú niðurstaða færð yfir á almenna markaðinn í heild má búast við störfum þar fjölgi um rúmlega 2.100 á næstu sex mánuðum. Sem fyrr er búist við langmestri fjölgun í byggingarstarfsemi, iðnaði og ferðaþjónustu.

undefined

Innan við helmingur með fullnýtta framleiðslugetu
Tæplega helmingur stjórnenda, 46%, telur ekki vandasamt að bregðast við óvæntri aukningu í eftirspurn eða sölu, sem er svipuð niðurstaða og fyrir hálfu ári síðan. Ástandið er erfiðast í byggingariðnaði. Ekki er búist við því að þessar aðstæður breytist næstu sex mánuði.

Búast við heldur meiri hagnaði á þessu ári
Töluvert fleiri stjórnendur búast við meiri hagnaði á þessu ári m.v. síðastliðið ár en þeir sem búast við að hann minnki. 39% stjórnenda búast við að hagnaður fyrirtækjanna sem þeir stjórna, sem hlutfall af veltu, aukist milli ára en 19% að hann minnki. Meirihluti stjórnenda í sjávarútvegi búast við minni hagnaði og 25% stjórnenda í flutningum og ferðaþjónustu. Bjartsýni um aukinn hagnað er mest í verslun og þjónustu.

Aukin framlegð
Væntingar stjórnenda um framlegð fyrirtækjanna, þ.e. EBITDA, á næstu sex mánuðum eru svipaðar og síðustu könnunum. Þannig búast 39% þeirra við því að framlegð aukist, 19% að hún minnki og 42% að hún standi í stað. Horfur eru lakastar í sjávarútvegi og flutningum og ferðaþjónustu en bestar í byggingarstarfsemi. Að mati stjórnendanna hefur framlegð í heild heldur batnað á síðustu sex mánuðum.

Eftirspurn eykst bæði innanlands og erlendis
57% stjórnenda búast við aukinni eftirspurn á innanlandsmarkaði á næstu sex mánuðum, 39% að hún standi í stað en 4% að hún minnki. Búist er við mestri aukningu eftirspurnar í byggingariðnaði, síðan í fjármálastarfsemi en þar á eftir koma verslun og flutningar og ferðaþjónusta. Iðnaðurinn sker sig nokkuð úr þar sem 10% stjórnenda búast við minnkandi eftirspurn.

44% stjórnenda búast við aukinni eftirspurn á erlendum mörkuðum, 45% að hún verði óbreytt og 11% að hún minnki. Minnst bjartsýni hvað erlenda eftirspurn varðar er í iðnaði þar sem tæplega 30% stjórnenda telja að eftirspurn minnki.

Fjárfestingar aukast mikið á árinu
Fjárfestingar fyrirtækjanna hafa aukist mikið á þessu ári samkvæmt könnuninni. 39% stjórnenda segja fjárfestingar hafa aukist á árinu en 14% að þær hafi minnkað miðað við árið 2015. Langmest aukning fjárfestinga er í byggingarstarfsemi og flutningum og ferðaþjónustu en aukning er í öllum atvinnugreinum nema fjármálastarfsemi.

undefined

Vænta ekki mikilla breytinga á vöxtum Seðlabankans
Væntingar stjórnenda um veðlánavexti Seðlabankans hafa lækkað um 1,1% frá könnuninni fyrir hálfu ári síðan. Seðlabankinn lækkaði veðlánavexti úr 6,5% í 6,0% á könnunartímabilinu en stjórnendur að meðaltali búast við að þeir verði 6,6% eftir 12 mánuði.

Minnkandi verðbólguvæntingar
Verðbólguvæntingar stjórnenda hafa minnkað og eru minni en þær hafa verið síðastliðin sex ár. Stjórnendur vænta að jafnaði 2,0% verðbólgu næstu 12 mánuði sem er 1% minni verðbólguvæntingar en í könnuninni sem gerð var í maí sl. Stjórnendur vænta þess að jafnaði að verðbólgan verði 3,0% eftir tvö ár sem einnig er lækkun frá síðustu könnunum. Þá vænta stjórnendur þess að verð á vöru og þjónustu fyrirtækjanna sem þeir stýra muni hækka um 0,6% á næstu sex mánuðum og að verð á aðföngum sem fyrirtækin kaupa af birgjum hækki um 1,2%.

undefined

Vænta stöðugs gengis krónunnar
Að jafnaði vænta stjórnendur þess að gengi  krónunnar styrkist um 1,3% næstu 12 mánuði. 

Um könnunina
Samtök atvinnulífsins eru í samstarfi við Seðlabanka Íslands um reglubundna könnun á stöðu og framtíðarhorfum stærstu fyrirtækja á Íslandi. Könnunin er gerð ársfjórðungslega og er framkvæmd hennar í höndum Gallup. Einföld könnun með 7 spurningum er gerð í annað hvort skipti, en hin skiptin er gerð ítarlegri könnun með 19 spurningum.

Að þessu sinni var könnunin gerð á tímabilinu 23. ágúst til 20. september og voru spurningar 19. Í úrtaki var 431 fyrirtæki sem teljast stærst miðað við heildarlaunagreiðslur og svöruðu 246, þannig að svarhlutfall var 57%. Niðurstöður eru greindar eftir staðsetningu fyrirtækis, atvinnugrein, veltu, starfsmannafjölda og hvort fyrirtækið starfi á útflutnings- eða innanlandsmarkaði. Atvinnugreinaflokkar eru sjö: (1) Sjávarútvegur, (2) iðnaður, (3) byggingarstarfsemi og veitur, (4) verslun, (5) samgöngur, flutningar og ferðaþjónusta, (6) fjármála- og tryggingastarfsemi og (7) ýmis sérhæfð þjónusta. Ekki er um að ræða samræmda túlkun samstarfsaðilanna á niðurstöðum könnunarinnar.

Samtök atvinnulífsins