Vinnumarkaður - 

28. apríl 2014

Orlofsuppbót 2014

Kjarasamningar

Kjarasamningar

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Orlofsuppbót 2014

Gengið hefur verið frá kjarasamningum við öll aðildarfélög SGS, LÍV, Samiðnar og RSÍ ásamt VM, Matvís, FBM og Félagi hársnyrta um hækkun orlofsuppbótar.

Gengið hefur verið frá kjarasamningum við öll aðildarfélög SGS, LÍV, Samiðnar og RSÍ ásamt VM, Matvís, FBM og Félagi hársnyrta um hækkun orlofsuppbótar.

Full orlofsuppbót á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2014 er kr. 39.500 og greiðist uppbótin þann 1. júní nk. Uppbótin tók viðbótarhækkun með samkomulagi um tveggja mánaða lengingu samningstíma og nær það einnig til þeirra félaga sem sömdu í desember sl. Ekki er lengur munur á verslunarmönnum og öðrum starfsgreinum en orlofs- og desemberuppbætur hafa nú verið samræmdar. Við útreikning orlofsuppbótar er litið til starfstíma og starfshlutfalls á síðasta orlofsári, þ.e. frá 1. maí 2013 til 30. apríl 2014, og telst fullt ársstarf í þessu sambandi 45 vikur eða meira fyrir utan orlof. Ekki er greitt orlof ofan á orlofsuppbót.

Sjá nánar á vinnumarkaðsvef SA

Samtök atvinnulífsins