Menntamál - 

06. nóvember 2017

Menntafyrirtæki ársins í Húsi atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Menntafyrirtæki ársins í Húsi atvinnulífsins

Alcoa Fjarðaál er menntafyrirtæki ársins 2017 en þriðjudaginn 7. nóvember kl. 8.30-10 koma góðir gestir frá fyrirtækinu í Hús atvinnulífsins.

Alcoa Fjarðaál er menntafyrirtæki ársins 2017 en þriðjudaginn 7. nóvember kl. 8.30-10 koma góðir gestir frá fyrirtækinu í Hús atvinnulífsins.

Á opnum fundi munu Magnús Ásmundsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls og Guðný B. Hauksdóttir, mannauðsstjóri skýra hvernig menntun og þjálfun starfsmanna fyrirtækisins fer fram og  hverju öflugt fræðslustarf skilar starfsmönnum og fyrirtækinu.

Fundarstjóri er Davíð Þorláksson, forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs SA.

Heitt verður á könnunni og létt morgunhressing í boði frá kl. 8.15.

Fundurinn er hluti af fundaröðinni Menntun og mannauður, nánari upplýsingar um menntadaginn og menntaverðlaun atvinnulífsins má nálgast hér á vef SA.

Kynning Alcoa Fjarðaáls frá fundinum (PDF)

Samtök atvinnulífsins