Menntamál - 

02. febrúar 2017

Keilir er menntasproti ársins 2017

Menntun í fyrirtækjum

Menntun í fyrirtækjum

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Keilir er menntasproti ársins 2017

Keilir – miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, er menntasproti ársins 2017. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti í morgun menntaverðlaun atvinnulífsins á menntadegi atvinnulífsins sem haldinn var í fjórða sinn á Hilton Reykjavík Nordica.

Keilir – miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, er menntasproti ársins 2017. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti í morgun menntaverðlaun atvinnulífsins á menntadegi atvinnulífsins sem haldinn var í fjórða sinn á Hilton Reykjavík Nordica.

Keilir var stofnaður árið 2007 og starfar á Ásbrú í Reykjanesbæ á gamla varnarsvæði Bandaríska hersins. Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka. Á aðeins tíu árum hefur tekist að breyta yfirgefinni herstöð í þekkingarþorp.

Keilir hefur lyft grettistaki, innleitt nýjar hugmyndir og kennsluhætti og lagt sig fram um að hlusta á þarfir atvinnulífsins og mennta starfsfólk sem eftirspurn er eftir þegar námi lýkur. Hlutfall háskólamenntaðra íbúa í Reykjanesbæ sem eru eldri en 25 ára hefur meira en tvöfaldast frá 2007 og 85% þeirra sem ljúka námi við Háskólabrú Keilis halda áfram í háskóla en margir þeirra hafa flosnað upp úr hefðbundnu háskólanámi.

„Fyrir hönd starfsfólks Keilis tek ég í auðmýkt við þessari skemmtilegu viðurkenningu. Við höfum reynt að fara nýjar leiðir við að bjóða fólki menntaúrræði. Þessi hvatning frá Samtökum atvinnulífsins hvetur okkur til frekari dáða. Við þökkum fyrir okkur,“ segir Hjálmar Árnason framkvæmdastjóri Keilis sem tók við verðlaununum ásamt hópi starfsfólks Keilis.

Í dómnefnd sátu Karen Kjartansdóttir fyrir Samtök atvinnulífsins, Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hotels sem var menntafyrirtæki ársins 2016, Sigurður Steinn Einarsson sérfræðingur hjá Síldarvinnslunni á Neskaupstað sem var menntasproti ársins 2015 og Ragnheiður H. Magnúsdóttir viðskiptastjóri hjá Marel sem var menntafyrirtæki ársins 2015.

undefined

Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins. Hjá aðildarfyrirtækjum samtakanna starfar um 70% launafólks á almennum vinnumarkaði.

undefined

Frá vinstri: Árni Sigfússon, stjórnarformaður Keilis, Sigrún Svafa Ólafsdóttir, verkefnastjóri, Arnbjörn Ólafsson, markaðsstjóri. Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri, Guðni Th. Jóhannesson, forsetastjóri. Anna María Sigurðardóttir, forstöðumaður kennslusviðs, Fjóla Þórdís Jónsdóttir, verkefnastjóri á kennslusviði. Berglind Kristjánsdóttir, forstöðumaður Háskólabrúar og Arnar Hafsteinsson, forstöðumaður Íþróttaakademíu.

Menntasproti ársins 2017 í Sjónvarpi atvinnulífsins

 

Samtök atvinnulífsins