Samkeppnishæfni - 

29. október 2015

Íslendingar vilja gera fríverslunarsamning við Bandaríkin

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Íslendingar vilja gera fríverslunarsamning við Bandaríkin

Framkvæmdastjórar samtaka atvinnulífs á Norðurlöndum hvetja til þess að fríverslunarviðræðum ESB og Bandaríkjanna verði lokið 2016 og samningurinn taki gildi við fyrsta mögulega tækifæri. Ný könnun sýnir afgerandi stuðning við samninginn í öllum löndunum. Mikill meirihluti, eða rúmlega sjö af hverjum tíu, eru almennt fylgjandi frjálsum viðskiptum. Þeir sem eru jákvæðir í garð mögulegs fríverslunarsamnings ESB og Bandaríkjanna eru fjórum sinnum fleiri en þeir sem eru neikvæðir. Meirihluti Íslendinga styður gerð samningsins en aðeins 7% er því mótfallinn.

Framkvæmdastjórar samtaka atvinnulífs á Norðurlöndum hvetja til þess að fríverslunarviðræðum ESB og Bandaríkjanna verði lokið 2016 og samningurinn taki gildi við fyrsta mögulega tækifæri. Ný könnun sýnir afgerandi stuðning við samninginn í öllum löndunum. Mikill meirihluti, eða rúmlega sjö af hverjum tíu, eru almennt fylgjandi frjálsum viðskiptum. Þeir sem eru jákvæðir í garð mögulegs fríverslunarsamnings ESB og Bandaríkjanna eru fjórum sinnum fleiri en þeir sem eru neikvæðir. Meirihluti Íslendinga styður gerð samningsins en aðeins 7% er því mótfallinn.

Í sameiginlegri grein framkvæmdastjóranna segja þeir að fríverslunarsamningurinn muni hafa jákvæð áhrif fyrir alla – bæði neytendur og fyrirtæki. Hagvöxtur muni aukast og störfum fjölga í löndunum fimm. Lítil og meðalstór fyrirtæki munu þó hagnast mest og eru stjórnendur þeirra jákvæðastir í garð samningsins.

Verði fríverslunarsamningur ESB og Bandaríkjanna að veruleika verður til eitt markaðssvæði Bandaríkjanna, Evrópu og Norðurlandanna með 850 milljóna manna heimamarkað. Framkvæmdastjórarnir telja brýnt að hraða viðræðunum.

„Við viljum tryggja hagsmuni allra við gerð samningsins og vinna að því markmiði með stjórnmálamönnum og fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar á Norðurlöndunum. Í ljósi þess að Bandaríkin og ríki við Kyrrahafið hafa nýverið gert fríverslunarsamning ( e. Trans Pacific Partner­ship; TPP) gerir það enn brýnna en áður að ESB og Bandaríkin ljúki samningaviðræðum sínum sem allra fyrst.

Greinina í heild og upplýsingar um könnunina má nálgast hér að neðan:

Mikill stuðningur á Norðurlöndum við frjálsa verslun yfir Atlantshafið 
Frjáls verslun og viðskipti er hluti af daglegu lífi fólks á Norðurlöndum. Hagkerfi landanna okkar eru lítil, en saman erum við í fremstu röð í framleiðslu og flutningi á hágæða vörum út um allan heim.  Saga okkar er mótuð af handverksmönnum (e. tradesman) sem freistuðu gæfunnar utan heimahaganna og fluttust vestur, til Færeyja, Íslands eða Grænlands,  í austur og suður til Úkraínu, til Frakklands, Svartahafs eða Miðjarðarhafs.  Þúsund árum eftir að norrænir landnemar stigu fæti á „Vínland“ er það mikilvægara sem aldrei fyrr að treysta böndin yfir Atlantshafið.

Bandaríkin eru mikilvægasta markaðssvæði (e. trading partner) Norðurlandanna allra fyrir utan innri markað ESB/EES. Bandaríkin og Evrópusambandið eiga nú í viðræðum um gerð fríverslunarsamnings (Transatlantic Trade and Investment Partnership: TTIP). Það er góð hugmynd að efla verslun og viðskipti og margir á þeirri skoðun. Ný könnun meðal 4.600 íbúa á Norðurlöndum sýnir  mikinn stuðning í öllum löndunum fimm við kosti frjálsrar verslunar og ekki síst verslunar á milli Evrópu og Bandaríkjanna.

Stór meirihluti, eða rúmlega sjö af hverjum tíu, eru almennt fylgjandi frjálsri verslun en Danir eru jákvæðastir þeirra Norðurlandaþjóðanna sem eiga aðild að ESB. Þeir sem eru jákvæðir í garð mögulegs  fríverslunarsamnings ESB og Bandaríkjanna er fjórum sinnum fleiri en þeir sem eru neikvæðir. Stuðningur við samninginn er afgerandi á Norðurlöndum öllum. Þeir sem hafa kynnt sér  efni samningaviðræðnanna vel eru jákvæðari í garð þeirra en þeir sem hafa ekki gert það. Íslendingar og Norðmenn nefna lægra vöruverð og aukið vöruúrval fyrir neytendur sem helstu kosti þess að gera fríverslunarsamning milli ESB og Bandaríkjanna, en Danir, Finnar og Svíar nefna aukinn útflutning, hagvöxt og fjölgun starfa. Það er almenn skoðun allra þjóðanna að bæði Evrópa og Bandaríkin muni hagnast ef samkomulag næst.

Fríverslunarsamningur sem tengir Evrópu og Bandaríkin saman mun hafa jákvæðar afleiðingar fyrir alla – bæði neytendur og fyrirtæki, hagvöxtur mun aukast og störfum fjölga í löndunum okkar fimm. Lítil og meðalstór fyrirtæki munu þó hagnast mest og eru stjórnendur þeirra jákvæðastir í garð fríverslunarsamningsins. Sameiginlegt regluverk og kröfur sem samningurinn mun hafa í för með sér mun hafa jákvæð áhrif á bæði atvinnulíf og neytendur í Evrópusambandinu (ESB) og á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Lækkun tolla eða afnám þeirra mun auka verslun milli landa (e. boost trade flows for EU members) og skapa ný tækifæri fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Eitt markaðssvæði Bandaríkjanna, Evrópu og Norðurlandanna yrði til með 850 milljóna manna heimamarkaði.

Þó svo að Noregur og Ísland séu ekki aðilar að Evrópusambandinu, telja bæði Íslendingar og Norðmenn að fríverslunarsamningur milli ESB og Bandaríkjanna myndi hafa jákvæð áhrif á innri markað EES-svæðisins sem þjóðirnar eiga aðild að. Fyrir utan aukinn kraft sem mun hlaupa í atvinnulífið og tilheyrandi vöxt efnahagslífsins á öllu EES-svæðinu munu íslenskir og norskir neytendur njóta góðs af samræmdri vottun og prófunum á neytendavörum sem samningurinn mun fela í sér. Ísland og Noregur gætu svo notið allra kosta fríverslunarsamningsins í fyllingu tímans með því að fullgilda hann nái ESB og Bandaríkin samkomulagi.

Án efa mun það reynast erfitt að ná samkomulagi um regluverk milli aðila. Því má þó ekki gleyma að neytendavernd er mikil beggja vegna Atlantsála og kröfur í umhverfismálum strangar. Nútímalegir neytendur, 850 milljón talsins, gera kröfur um góðar og öruggar vörur og fyrirmyndar þjónustu. Standi fyrirtæki ekki undir kröfum neytenda verða snúa þeir sér annað og fyrirtækin verða undir í samkeppninni. Góðar líkur eru á að staðlar ESB og Bandaríkjanna geti orðið öðrum þjóðum fyrirmynd í alþjóðaviðskiptum.

Í ljósi mikil stuðnings á Norðurlöndunum við gerð fríverslunarsamnings milli ESB og Bandaríkjanna viljum við biðja samninganefndirnar um tvennt. Í fyrsta lagi að samningaviðræðum verði lokið á næsta ári og samningurinn taki gildi við fyrsta mögulega tækifæri. Í öðru lagi óskum við þess að fríverslunarsamningur ESB og Bandaríkjanna verði metnaðarfullur og feli í sér skýran lagaramma sem tryggi fjárfestingar aðildarfyrirtækja okkar.  (e. we need the deal to be ambitious and inclusive, and combined with sound legal safeguards for our member companies’ investments). Við viljum tryggja hagsmuni allra með gerð samningsins og vinna að því markmiði með stjórnmálamönnum og fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar á Norðurlöndunum.  Í ljósi þess að Bandaríkin og ríki við Kyrrahafið hafa nýverið gert fríverslunarsamning (Trans Pacific Partnership: TPP) gerir það enn brýnna en áður að ESB og Bandaríkin ljúki samningaviðræðum sínum sem allra fyrst.

Carola Lemne, framvæmdastjóri SN, samtaka atvinnulífsins í Svíþjóð.
Jyri Häkämies, framkvæmdastjóri EK, samtaka atvinnulífsins í Finnlandi.
Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA, Samtaka atvinnulífsins á Íslandi.
Kristin Skogen Lund, framvæmdastjóri NHO, samtaka atvinnulífsins í Noregi.
Karsten Dybvad, framkvæmdastjóri DI, samtaka iðnaðarins í Danmörku.

Um könnunina:

Könnunin var gerð á Norðurlöndum dagana 31. júlí – 11. ágúst 2015. Yfir 1.000 svör fengust í löndunum utan Íslands þar sem svör voru 578. CINT sá um framkvæmd könnunarinnar í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku en MMR á Íslandi. Samtök atvinnulífsins í Svíþjóð létu gera könnunina.

Samtök atvinnulífsins