Fréttir - 

17. október 2017

Haustfundaröð SA heldur áfram

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Haustfundaröð SA heldur áfram

Samtök atvinnulífsins hafa á undanförnum vikum efnt til funda víða um landið. Haustfundaröð SA ber yfirskriftina Atvinnulífið 2018 og heldur áfram í dag með opnum fundi í Stykkishólmi. Á morgun, miðvikudag, verður fundað í Reykjanesbæ og á fimmtudaginn í Reykjavík.

Samtök atvinnulífsins hafa á undanförnum vikum efnt til funda víða um landið. Haustfundaröð SA ber yfirskriftina Atvinnulífið 2018 og heldur áfram í dag með opnum fundi í Stykkishólmi. Á morgun, miðvikudag, verður fundað í Reykjanesbæ og á fimmtudaginn í Reykjavík.

Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA hér að neðan. Áhugafólk um uppbyggingu atvinnulífsins og öflugt mannlíf er hvatt til að mæta og láta í sér heyra en fulltrúar SA hlakka til að hitta stjórnendur og starfsfólk öflugra fyrirtækja, sveitastjórnarmenn og stjórnmálamenn, og horfa fram á veginn.

Á fundinum munu Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA, Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, og Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA rýna í stöðu og horfur á vinnumarkaði.

Hagvöxtur er mikill, gengi krónunnar sterkt og verðbólga lág en það eru blikur á lofti. Niðurstöður kjarasamninga í vetur munu ráða miklu um lífskjör Íslendinga á næstu misserum. Þá verður einnig fjallað um á hverju framtíðar hagvöxtur Íslands mun byggja.

Fundaröðinni lýkur svo í bili á Ísafirði í næstu viku með opnum fundi 24. október. Áfram verður haldið í nóvember og verða fleiri fundarstaðir kynntir að loknum alþingiskosningum. Nú þegar hafa SA hitt fjölda fólks og átt uppbyggilegar umræður á Ísafirði, Akureyri, Sauðárkrók, Vestmannaeyjum, Egilsstöðum, Neskaupstað og Höfn. Samtök atvinnulífsins þakka góðar móttökur. 

Samtök atvinnulífsins