Samkeppnishæfni - 

25. september 2015

Forseti Íslands afhendir umhverfisverðlaun atvinnulífsins

Umhverfismál

Umhverfismál

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Forseti Íslands afhendir umhverfisverðlaun atvinnulífsins

Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn í fyrsta skipti miðvikudaginn 30. september á Hilton Reykjavík Nordica frá kl 8.30-12. Að deginum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn í fyrsta skipti miðvikudaginn 30. september á Hilton Reykjavík Nordica frá kl 8.30-12. Að deginum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Sjálfbær nýting auðlinda verður í kastljósinu en fyrri hlutinn kl. 8.30-10 er helgaður sameiginlegri dagskrá þar sem flutt verða fróðleg erindi.

Daði Már Kristófersson, umhverfis- og auðlindahagfræðingur og forseti félagsvísindasviðs HÍ, fjallar um ábyrga nýtingu auðlinda og hagsmuni atvinnulífsins, Kristín Vala Matthíasdóttir, efnaverkfræðingur ræðir um Auðlindagarðinn á Suðurnesjum og Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur og rithöfundur fjallar um þorskinn, pólitíkina, söguna og vísindin síðustu 40 árin. 

undefined

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson afhendir umhverfisverðlaun atvinnulífsins.Umhverfisfyrirtæki ársins 2015 verður útnefnt auk þess sem Framtak ársins 2015 í umhverfismálum verður verðlaunað. Sjá nánari upplýsingar um verðlaunin.

Fundarstjóri er Sigurborg Arnarsdóttir, sérfræðingur í samfélagsábyrgð hjá Össuri.

Fjölbreyttar málstofur
Seinni hlutinn þ.e. frá kl 10.15-12 verður helgaður málstofum aðildarsamtaka SA þar sem boðið verður upp metnaðarfulla dagskrá sem sjá má hér að neðan.

Allir eru velkomnir og er ekkert þátttökugjald en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér á vef SA. Hægt er að skrá sig eingöngu á sameiginlegu dagskrána kl. 8.30-10 eða á allan daginn en þá verður jafnframt að velja eina málstofu.

undefined

Málstofa SAF:

Áherslur Landverndar varðandi ferðaþjónustu og náttúrvernd?

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar.

Hvernig lágmarka ferðaþjónustufyrirtæki umhverfisspor sitt?
Ósk Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Hálendisferða.
Einar Bollason, stofnandi Íshesta og fyrrverandi varaformaður SAF

Virði náttúrunnar fyrir heilsu og vellíðan ferðamannsins
Páll Jakob Líndal,  doktor í  umhverfissálfræði.

Pallborð þátttakenda.

Málsstofustjóri er Dr. Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent við HÍ. 

Málstofa SI:

Fyrirtæki skapa lausnir

Tölum um umbúðir
Stefán Hrafn Hagalín, markaðs-  og mannauðsstjóri Odda.

Verðmæti úr úrgangi
Sunna Wallevik, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Grænar kaffibaunir frá býli í bolla
Aðalheiður Héðinsdóttir, framkvæmdastjóri Kaffitárs.

Viðskiptatækifæri í grænni tækni
Egill Másson, fjárfestingarstjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.

Málstofustjóri er Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður framleiðslu- og matvælasviðs SI.

Málstofa SFS

Lengi tekur sjórinn við
Svavar Svavarsson, viðskiptaþróun HB Granda.

Virðisauki úr náttúrunni 
Sigríður Vigfúsdóttir, framkvæmdarstjóri Primex.

Salt – nýtt eða endurnýtt?
Einar Lárusson, vöruþróun Þorbjörns.

Hreinsun frárennslis og endurunnin olía
Páll Scheving, framleiðslustjóri Ísfélags Vestmannaeyja.

Málstofustjóri er Haukur Þór Hauksson, aðstoðarframkvæmdarstjóri SFS

Málstofa SFF

Áskoranir framtíðarinnar-mikilvægi umhverfismála fyrir fjármálafyrirtæki og vátryggingafélög.
Finnur Sveinsson, sérfræðingur í samfélagsábyrgð.

Heildun – samfélagsstefna Íslandsbanka.
Björgvin Ingi Ólafsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar

Frá pappír til varahluta – Sjóvá
Sæmundur Sæmundsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Sjóvá

Málstofustjóri er Hildur Grétarsdóttir, gæðastjóri hjá Verði.

Málstofa Samorku

Umhverfissýn á tímum loftslagsbreytinga
Guðni Elísson, prófessor við HÍ.

Veituþjónusta og matvælaframleiðsla
Eðvald Sveinn Valgarðsson, gæðastjóri Kjarnafæðis.

Mat á sjálfbærni
Ragnheiður Ólafsdóttir, umhverfisstjóri Landsvirkjunar.

Málstofustjóri er Steinunn Huld Atladóttir, gæða- og umhverfisstjóri RARIK.

SKRÁNING:

Smelltu hér til að skrá þig

Samtök atvinnulífsins