Fréttir - 

06. apríl 2018

Formannskjör Samtaka atvinnulífsins 2018

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Formannskjör Samtaka atvinnulífsins 2018

Rafræn kosning formanns Samtaka atvinnulífsins fyrir starfsárið 2018-2019 stendur yfir meðal aðildarfyrirtækja SA. Eyjólfur Árni Rafnsson gefur áfram kost á sér sem formaður en hann tók við formennsku árið 2017.

Hægt er að kjósa til kl. 16.00 sunnudaginn 15. apríl.

Nánari upplýsingar um formann SA

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2018 hefst í Hörpu kl. 12 mánudaginn 16. apríl þar sem verður greint frá kjöri formanns og stjórnar SA 2018-2019. Kjörgengir til embættis formanns eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna.

Ársfundur atvinnulífsins 2018 fer fram í kjölfar aðalfundarins í Hörpu - Silfurbergi, kl. 14-15.30 og er öllum opinn. Framfarir í hundrað ár er yfirskrift fundarins en á árinu fagna landsmenn því að heil öld er frá því Ísland varð frjálst og fullvalda ríki þann 1. desember árið 1918. Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA og forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir ávarpa fundinn. Hægt er að tryggja sér sæti með því að skrá sig hér að neðan.

SKRÁNING

Umsóknarferli er lokið.

Samtök atvinnulífsins