1 MIN
Erlent starfsfólk á Íslenskum vinnumarkaði
Á morgun, þriðjudaginn 19. apríl fer fram morgunverðarfundur í Húsi atvinnulífsins þar sem verður fjallað um erlent starfsfólk á íslenskum vinnumarkaði. Fundurinn er hluti af fundaröðinni Menntun og mannauður 2015-2016 sem hefur verið afar vel sótt í vetur en fundurinn er haldinn í salnum Kviku á 1. hæð í Borgartúni 35.

Samtök atvinnulífsins ásamt aðildarsamtökum SA standa að fundinum, allir eru velkomnir á meðan pláss leyfir, en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér að neðan. Kaffi, te og með því frá kl. 8.15.
Fundurinn verður einnig sendur út í beinni útsendingu, slóð á útsendinguna má nálgast hér að neðan.
Smelltu hér til að horfa - útsending hefst kl. 8.30 þriðjudaginn 19. apríl
DAGSKRÁ
Erlendir starfsmenn – áskoranir og tækifæri.
Sigríður Harðardóttir, mannauðsstjóri – Strætó.
Að skilja íslensku rýfur einangrun
Guðmundur Oddgeirsson, framkvæmdastjóri – Hýsing, Vöruhótel.
Innflutningshöft á þekkingu?
Margrét Jónsdóttir, starfsmanna- og skrifstofustjóri – Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum.
Spurningar og spjall.