Samkeppnishæfni - 

05. desember 2016

ASÍ gegn almannahagsmunum?

Samkeppnismál

Samkeppnismál

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

ASÍ gegn almannahagsmunum?

Nýlega hefur komið fram að Alþýðusamband Íslands vill ekki að unnt sé að ljúka málum gagnvart ákvörðunum stjórnvalda án þess að þurfa að eiga á hættu löng og kostnaðarsöm málaferli.

Nýlega hefur komið fram að Alþýðusamband Íslands vill ekki að unnt sé að ljúka málum gagnvart ákvörðunum stjórnvalda án þess að þurfa að eiga á hættu löng og kostnaðarsöm málaferli.

Undanfarin ár hafa verið settar á fót úrskurðarnefndir sem almenningur (fólk, félagasamtök, fyrirtæki) getur áfrýjað til ákvörðunum opinberra stofnana. Þar má nefna úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, áfrýjunarnefnd neytendamála, úrskurðarnefnd póst- og fjarskiptamála og kærunefnd jafnréttismála. Einnig má nefna yfirskattanefnd sem úrskurðar um kærur vegna ákvarðana ríkisskattstjóra og er lokaniðurstaða mála fyrir skattyfirvöldin.

Það sem er sammerkt með þessum nefndum er að þar getur fólk leitað réttar síns og þegar úrskurður fellur því í hag er málinu lokið. Þannig geta þær stofnanir sem tóku ákvarðanir sem felldar hafa verið úr gildi ekki tekið mál upp að nýju né farið með málin fyrir dómstóla. Almennt er þetta fallið til að auka réttaröryggi í landinu og tryggja að almenningur eigi auðvelda leið til að fá úrlausn mála sinna án þess að til þurfi að koma löng og oft dýr málaferli fyrir dómstólum.

Þessu er öðruvísi farið með áfrýjunarnefnd samkeppnismála þar sem Samkeppniseftirlitið getur farið í mál til að fá úrskurðum hennar hnekkt. Með þessu er grafið undan réttarörygginu og þeir sem telja sig hafa verið beittir órétti af hálfu Samkeppniseftirlitsins geta ekki treyst því að málinu ljúki með niðurstöðu áfrýjunarnefndar.

Alþýðusamband Íslands hefur nú komið fram með þá skoðun að ekki eigi að vera unnt að ljúka málum fyrir úrskurðarnefndum. Í pistli á vef ASÍ eru Samtökum atvinnulífsins ekki vandaðar kveðjurnar. Þar er fullyrt að SA vilji banna Samkeppniseftirlitinu að verja almannahagsmuni. Tilefni skrifanna er að Samtök atvinnulífsins áréttuðu nýverið skoðun sína um að breyting verði gerð á samkeppnislögunum þannig að felld verði úr gildi heimild Samkeppniseftirlitsins til að skjóta úrskurðum áfrýjunarnefndar samkeppnismála til dómstóla.

Ákvæðið var samþykkt með breytingu á samkeppnislögunum í febrúar 2011 og er mjög óeðlilegt, þ.e. að ef ríkisstofnun hugnast ekki niðurstaða tiltekins máls að hún geti farið í mál við þann sem úrskurðar um ákvarðanir hennar. Samtök atvinnulífsins settu fram þessa skoðun í skýrslu í október 2012 en hún var kynnt á opnum fundi þar sem forstjóri eftirlitsins var á meðal ræðumanna.

Fullyrðing ASÍ um að afstaða SA snúist um MS og mál fyrirtækisins sem eftirlitið tók nýverið fyrir stenst ekki.

Ákvæðið um úrskurðarnefnd samkeppnismála er skaðlegt atvinnulífinu þar sem það lengir málarekstur, eykur óvissu í rekstri fyrirtækja og kostnað. Hættan er alltaf sú að Samkeppniseftirlitið höfði mál fyrir dómstólum hafi úrskurður áfrýjunarnefndar fallið fyrirtækjum í vil. Úrskurðir áfrýjunarnefndar hætta þá að skipta máli og eru einungis til að tefja fyrir endanlegri úrlausn mála. Þetta þýðir í raun að búið er að taka úr sambandi möguleika fyrirtækja til að ljúka málum á stjórnsýslustigi. Vandséð er að það sé neytendum til hagsbóta.

Nánari umfjöllun má finna í skýrslu SA sem út kom í október 2012, bls. 21 – 22:

Viðhorf atvinnulífsins: Samkeppnislögin og framkvæmd þeirra (PDF)

undefined

Samtök atvinnulífsins