Samkeppnishæfni - 

27. ágúst 2018

Almannarómur bjargar íslenskunni frá stafrænum dauða

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Almannarómur bjargar íslenskunni frá stafrænum dauða

Íslenska er mál atvinnulífsins og SA hafa sett framtíð tungumálsins í forgrunn á síðustu misserum. Mennta- og menningarmálaráðherra hefur nú skrifað undir samning við sjálfseignarstofnunina Almannaróm um rekstur miðstöðvar máltækniáætlunar til ársins 2022. Markmið máltækniáætlunarinnar er skýrt, að tryggja að hvers kyns tæki og tól tali og skilji íslensku og tungumálinu verði þar með forðað frá stafrænum dauða vegna yfirburðastöðu enskunnar.

Meðal verkefna sem ráðist verður í er að kynna möguleika máltækni fyrir fyrirtækjum og stofnunum og koma á samstarfi við erlend fyrirtæki sem þróa máltæknilausnir og fylgjast með möguleikum á fjölþjóðlegu þróunarsamstarfi í máltækni. Markmið máltækniáætlunarinnar er m.a. að íslensku verði að finna í öllum tækjabúnaði og í hugbúnaði stærstu tæknifyrirtækja heims. Tími til stefnu er naumur vegna þess að gervigreind og máltækni í heiminum þróast á ógnarhraða og mikilvægt að Ísland sitji ekki eftir.

Samningurinn við Almannaróm er mikilvægur áfangi en innan Almannaróms koma saman fjölbreyttir aðilar sem leggja sitt af mörkum til að tryggja að íslenskan glatist ekki. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, stjórnarformaður Almannaróms undirrituðu samninginn.

„Máltækniáætlunin er eitt mikilvægustu skrefanna sem við stígum nú til þess að tryggja betur framtíð íslenskunnar og þar með menningu okkar og sjálfstæði,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir við undirritunina.

 „Það er breiðfylking að baki Almannarómi, að stofnuninni standa háskóla- og rannsóknarstofnanir, fyrirtæki og félagasamtök sem öll brenna fyrir þetta brýna verkefni að tryggja að íslenskan standi jafnfætis öðrum tungumálum í síbreytilegum tækniheimi. Markmið okkar er að stuðla að aðgengi almennings og atvinnulífs að nauðsynlegri máltækni svo framtíðin hljómi vel á íslensku,“ sagði Stefanía Guðrún Halldórsdóttir. „Næstu skref verða að móta okkur starfsáætlun, ráða framkvæmdastjóra og skipa fagráð. Við erum mjög spennt að spyrna þessu verkefni af stað.“

Nánari upplýsingar má nálgast í frétt ráðuneytisins hér að neðan ásamt ítarlegri umfjöllun um íslenskuna og máltækni á vef SA. 

Sjá nánar:

Máltækniverkefni á áætlun – frétt á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis

Íslenska verði gjaldgeng í stafrænum heimi – umfjöllun á vef SA

Ísl(enskan) – frétt á vef SA

Máltækninám eflt – frétt á vef SA

Nýjasta máltækni og vísindi – upptökur frá menntadegi atvinnulífsins 2017

Ekki nógu góðar hugmyndir á Íslandi – Gummi hjá Google

Máltækiárið 2018

Fer lyklaborðið sömu leið og telexið og vídeótækin?

Samtök atvinnulífsins